Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur hjá Arion banka, segir verðbólguspá fyrir maímánuð hafa lækkað vegna þess að virðisaukaskattur á eldsneyti úr dælu verður lækkaður á morgun.Samkvæmt útreikningum Arion banka hafi lækkunin neikvæð áhrif á vísitölu neysluverðs um 0,25 prósent. „Til að setja það á mannamál þá erum við að spá núna að verðbólgan í maí verði 5 prósent, ef ekki hefði komið til þessara aðgerða þá værum við að spá 5,3 prósenta verðbólgu í maí. Þannig að það munar klárlega um þetta,“ segir Erna.Hún segir áhrif lækkunarinnar fyrst og fremst koma fram í gegnum verð á eldsneyti á dælu en að afleiddu áhrifin gætu verið meiri inn í hagkerfið, til dæmis í gegnum ferðaþjónustuna. „Þannig að afleiddu áhrifin geta verið til staðar en svona beinu áhrifin inn í verðbólguna, það er fyr