Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar og grínisti, segist ekkert hafa fengið greitt fyrir framkomu sína í Vikunni hjá Gísla Marteini, eins og fram kom í máli útvarpstjóra samkvæmt fundargerð stjórnar Rúv. Greint var frá málinu á mbl.is í morgun en Jón sakar Morgunblaðið um óvandaða blaðamennsku og „pólitískan hráskinnaleik.“