Deildarstjóri hjá Matvælastofnun segir það nýlundu að salmonella greinist í nautahakki hér á landi og ítrekar tilmæli stofnunarinnar um að steikja þurfi nautahakk í gegn til þess að koma í veg fyrir möguleg smit. Alls hafa fjórar innkallanir á nautakjöti verið gerðar vegna gruns um salmonellusmit á þessu ári, en áður voru slíkar innkallanir nánast óþekktar.