Lögregla stöðvaði fyrr í dag ökumann við akstur, en sá var að horfa á myndskeið í farsíma sínum við akstur. Bar ökumaður fyrir sig að slíkt væri í lagi því hann væri að nýta sér handfrjálsan búnað við það, en svo reyndist ekki og á ökumaður von á sekt.