Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bruggari leitar að týndu vegglistaverki

Sigurður Snorrason, eigandi Reykjavík Bruggfélags, er á höttunum eftir týndu vegglistaverki.„Ég er að leita að ljósmynd, helst í lit, sem sýnir alla þessa veggmynd sem var í anddyri Tónabíós, Skipholti. Staðurinn er nú opinn og tónlistin komin aftur í húsið, svo okkur langar að endurgera þessa mynd. Allar vísbendingar vel þegnar,“ skrifar Sigurður í Facebook-hópnum Gamlar ljósmyndir.Með færslu Sigurðar fylgir mynd, sem hann telur um tíu ára gamla, af vegglistaverkinu en hún var tekin á þeim tíma sem Vinabær var í húsinu. Stór hluti verksins er hins vegar hulinn sökum óheppilegrar staðsetningar Pepsi Max-sjálfsala.„Veggmyndin var á veggnum þar til fyrir nokkrum árum þegar hún hvarf undir sprunguviðgerðir og sparsl, því miður,“ skrifar Sigurður. TÓNLISTARFÉLAGIÐ Í REYKJAVÍK UPPRUNALEGUR EI
Bruggari leitar að týndu vegglistaverki

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta