Ráðstefnan kallast Transitioning away from fossil fuels, eða Tilfærsla frá jarðefnaeldsneyti, og er sú fyrsta sinnar tegundar.Ráðstefnan fer fram í Santa Marta, strandbæ í Kólumbíu sem gerir mikið út á ferðamennsku. Santa Marta er jafnframt sá bær í Kólumbíu sem flytur út mest kol, en Kólumbía er fimmti stærsti kolútflytjandi í heimi.Og það er kannski viðeigandi að ráðstefnan sé haldin þar, þar sem aðalumfjöllunarefnið er orkuskipti og hvernig hægt er að hverfa frá notkun jarðefnaeldsneytis.Alþjóðleg loftslagsráðstefna í Kólumbíu er fyrsta umhverfisverndarráðstefnan þar sem fókusinn er á orkuskipti og hvernig þjóðir heims geta sagt skilið við jarðefnaeldsneyti.Susana Muhamad, fyrrverandi umhverfisráðherra Kólumbíu, segir að þessi ráðstefna sé frábrugðin öðrum að því leyti að loksins snúist