Virðisaukaskattur á eldsneyti úr dælu verður lækkaður á morgun úr 24% í 11%. Verð á lítra af bensíni lækkar við það um 25 krónur að meðaltali miðað við núverandi verð og lítri af dísilolíu um 30 krónur.Fyrir meðalneytandann má ætla að útgjöldin lækki um rúmlega 50 þúsund krónur yfir árið. Lækkunin er liður í tímabundnum efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar sem eiga að mæta óvissu og verðhækkunum á olíu á heimsvísu vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. ÓVISSA UM ÞRÓUN MARKAÐSINS Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda fagnar því að Samkeppniseftirlitinu verði gert að vakta að lækkunin skili sér til neytenda.„Bensín hefur hækkað um tæplega 60 krónur og dísilolían um tæplega 70 krónur þar sem hún hefur hækkað mest, þannig að það hafa verið miklar verðbreytingar frá byrjun mars þeg