Draga þarf úr eftirspurn eftir vændi og færa ábyrgðina meira á þá sem leigja út gistirými þar sem vændi er stundað til að koma í veg fyrir að Ísland verði sífellt vinsælli áfangastaður fyrir kynlífsmansal. Þetta segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Rætt var við hana í kvöldfréttum sjónvarps.Lögreglan geti haldið áfram að eltast við fólk sem brýtur lög um vændiskaup en rót vandans sé eftirspurnin og hve arðbær starfsemin er.Hún tekur undir áherslur Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, að herða þurfi refsingar og afnema nafnleynd í tengslum við vændiskaup.„Við þurfum að fara á þessa staði markvisst og hafa samband við gistieigendur og biðja þá líka um að úthýsa þessari starfsemi þannig að skipulögð brotasamtök geti ekki lengur leigt þessa staði,“ se