Oddvitar framboða í Grindavík eru sammála um að endurreisn bæjarins verði ærið verkefni og segja mikilvægt að vinna saman að því að gera Grindvíkingum kleift að snúa aftur heim. Oddvitaumræður fóru fram í Grindavík í dag og vakti athygli hve fá ágreiningsefnin voru og virðast oddvitarnir sjá fram á gott samstarf sama hver niðurstaða sveitarstjórnarkosninganna verður. Enginn þeirra útilokaði að vinna með öðrum flokki.„Það hefur verið lítil pólitík í Grindavík,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins. Grindavík sé á mikilvægum tímamótum þar sem samstarf við ríkisstjórnina skipti sköpum.Húsnæðismálin verða brýnust á komandi kjörtímabili, segir Guðbjörg Eyjólfsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins. Þau þurfi að liggja skýrt fyrir svo Grindvíkingar geti snúið aftur heim.„Þa