Hlekkur á vefsíðuna hefur verið í dreifingu í íslenskum Facebook-hópum og fjölmörg nöfn bæst við á síðustu dögum - þar á meðal nöfn þjóðþekktra Íslendinga. Sum nöfn á listanum eru nöfn einstaklinga sem hafa verið ákærðir eða dæmdir fyrir ofbeldisbrot en mörg ekki.Hægt er að flokka leitarniðurstöður eftir nafni, borgum og löndum. Eftirlit með innslögum virðist lítið sem ekkert en sum nefna heila stjórnmálaflokka, fjölmiðla eða teiknimyndafígúrur sem gerendur.Gerður er sá fyrirvari að allar fullyrðingar sem notendur birti séu óstaðfestar og ekki fyrir tilstilli þeirra sem reki vefsíðuna. Þeir hvorki styðji, staðfesti né rannsaki réttmæti yfirlýsinga. GETUR VERIÐ REFSIVERT Hildur Sunna Pálmadóttir, sviðstjóri ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir vefsíður sem þessar varhugave