Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Oddvitaumræður í Grindavík

Þrír listar eru í framboði í Grindavík fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mættust í umræðum. Þátttakendur voru: * Ásrún Helga Kristinsdóttir, Framsóknarflokki * Guðbjörg Eyjólfsdóttir, Sjálfstæðisflokki * Magnús Már Jakobsson, Miðflokki Umsjónarmaður er Ingvar Þór Björnsson.Endurreisn samfélagsins í Grindavík og niðurstaða Grindavíkurnefndar var oddvitum ofarlega í huga. Endurskoðun tekjustofna sveitarfélagsins, líðan barna og skólastarf, atvinnulífið og stjórnsýslan bar einnig á góma.819 eru með skráða búsetu í bænum. Grindavík var meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins þar til bærinn var rýmdur í nóvember 2023 og brottfluttum íbúum gafst kostur á að skrá sig þar á kjörskrá. Óvenjuleg staða bæjarfélagsins gefur sérstakt tilefni til oddvitaumræðna þar.
Oddvitaumræður í Grindavík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta