Útflutningsgreinar eru líklegar til að njóta ábata af aðild að Evrópusambandinu og upptöku evru. Heimili og fyrirtæki eru líkleg til að njóta lægri vaxta og betri kjara hjá fjármálastofnunum vegna aukinnar samkeppni og valdar vörutegundir lækka í verði. Á móti kemur að einstaka atvinnugreinar gætu farið halloka í samkeppni og án íslenskrar peningastefnu þyrfti aðlögun hagkerfisins að fara í gegnum atvinnuleysi eða launalækkun þegar illa árar.Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur svarað utanríkismálanefnd Alþingis níu spurningum sem nefndin beindi til hennar og varða efnahagsleg áhrif aðildar að Evrópusambandinu og upptöku evru. Fulltrúar Hagfræðistofnunar mæta fyrir nefndina eftir helgi til að kynna efni samantektarinnar. Hér að neðan verður greint frá helstu niðurstöðum. AUKIN SAMKEPPNI