Ný höggmynd eftir götulistamanninn Banksy hefur litið dagsins ljós í miðborg Lundúna. Skúlptúrinn sýnir mann í jakkafötum sem heldur á stórum fána. Fáninn hylur andlit mannsins sem sér því ekki að hann er við það að ganga fram af stöplinum.Styttunni hefur verið komið fyrir við Waterloo Place, í Westminster-hverfi, skammt frá höggmyndum af Játvarði VII konungi, hjúkrunarkonunni Florence Nightingale og minnisvarða um Krímstríðið. SÉRFRÆÐINGUR SEGIR ÞETTA „SNILLDARVERK“ James Peak, sem er umsjónarmaður hlaðvarpsseríu á BBC um Banksy, segir höggmyndina snilldarverk og að með henni deili Banksy á hrokafulla valdhafa. Peak segir sögu Bretlands litaða af heimsvaldastefnu og að ein birtingarmynd hennar sé róttæk þjóðernishyggja sem Banksy hafi andstyggð á.Listamanninn Banksy þarf vart að kynna.