Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Dómnefnd Feneyjatvíæringsins segir af sér í mótmælaskyni

Alþjóðleg dómnefnd Feneyjatvíæringsins í myndlist hefur sagt af sér. Í stuttri yfirlýsingu sem hún birti á eFlux segir að með afsögn sinni standi dómnefndin með fyrri yfirlýsingu sinni sem dómnefndin sendi frá sér í síðustu viku. Í henni greindi dómnefndin frá því að í störfum sínum myndi hún ekki taka til greina þjóðarskála ríkja hverra þjóðarleiðtogar hafa verið sakaðir um glæpi gegn mannkyni af alþjóðlega sakamáladómstólnum, ICC.Engin lönd voru nefnd í tilkynningunni en ICC hefur meðal annars gefið út handtökutilskapnir á hendur Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra Ísraels og Vladimírs Pútíns forseta Rússlands.Listahátíðin sem haldin er á tveggja ára fresti hefur oft verið kölluð ólympíuleikar myndlistar. Þjóðir heims senda fulltrúa sína til Feneyja sem beinlínis keppa í myndlist. Dómne
Dómnefnd Feneyjatvíæringsins segir af sér í mótmælaskyni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta