Eyðimerkurepíkin Desert Warrior átti að vera fyrsti liðurinn í menningarátaki Sádi-Arabíu og stórmynd sem gæti keppt við það besta í Hollywood en stefnir í að verða eitt stærsta flopp sögunnar. Framleiðsla myndarinnar kostaði 150 milljónir Bandaríkjadala en eftir fyrstu vikuna er aðeins hálf milljón komin í kassann.