Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Svört rigning fellur til jarðar í Rússlandi

Svartur, eitraður reykur, fugladauði í massavís og svört rigning. Svona lýsa íbúar í rússneska hafnarbænum Tuapse við Svartahaf aðstæðum síðustu daga. Ástæðan eru drónaárásir Úkraínumanna á olíuhreinsistöð Rosneft í bænum. Úkraínumenn hafa sett aukinn þunga í árásir á olíuinnviði Rússa undanfarna mánuði. ÞRIÐJA ÁRÁSIN Á TVEIMUR VIKUM Þetta er þriðja árásin á olíuhreinsistöðina á síðustu tveimur vikum. Stórir eldar hafa brotist út og fólk sem býr næst olíuhreinsistöðinni hefur þurft að flýja heimili sín. Olía hefur flætt út í sjó og í á sem rennur í gegnum bæinn og íbúar hafa lýst svartri rigningu yfir borginni, sem skilur eftir sig svarta slikju um allt.Tuapse er í suðurhluta Rússlands, við Svartahaf, um 230 kílómetra frá Úkraínu.Úkraínsk stjórnvöld hafa sagst bera ábyrgð á árásunum og
Svört rigning fellur til jarðar í Rússlandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta