Strætó verður gjaldfrjáls fyrir grunnskólabörn í Reykjavík frá og með næsta mánuði. Á fundi borgarstjórnar þann 3. febrúar síðastliðinn var samþykkt tillaga þess efnis. Á fundi borgarráðs í dag lagði Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri fram tillögur varðandi útfærsluna.Tillögurnar voru fjórar: Í fyrsta lagi að boðið verði upp á tímabilskort í Klapp-appi Strætó í maí og júní 2026 fyrir reykvísk börn á grunnskólaaldri (í 1.-10. bekk) sem brúarlausn á meðan varanleg útfærsla er unnin. Í öðru lagi að börnum sem gangi í grunnskóla á Kjalarnesi verði tryggt sambærilegt aðgengi að lausninni í gegnum niðurgreiðslu á ferðakostnaði þá mánuði sem brúarlausnin nær yfir.Í þriðja lagi var lagt til að starfshópur hefji viðræður við Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf., sem tekur við rekstri St