Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur og rithöfundur, var sæmdur heiðursborgaratitli Reykjavíkur í dag. Guðjón hefur verið áberandi í íslensku menningarlífi, fyrst sem blaðamaður og síðar sem höfundur sagnfræðirita, til að mynda Sögu Reykjavíkur, Bærinn vaknar og ævisögu Einars Benediktssonar.Hann hefur fengið margar viðurkenningar fyrir störf sín og verið sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu.Í tilkynningu Reykjavíkurborgar segir að fáir, ef nokkrir, hafi gert meira til að lyfta upp sögulegri sjálfsmynd Reykjavíkur en Guðjón. Með verkum sínum hafi hann dýpkað skilning fólks á sögu Reykjavíkur og íslensku samfélagi.Heiða Björg Hilmisdóttir sæmdi Guðjón heiðursborgaranafnbótinni við hátíðlega athöfn í Hörpu. Guðjón er áttundi heiðursborgari Reykjavíkur. Með útnefningunni er ætlunin að