Samkeppniseftirlitinu hefur verið falið að hafa eftirlit með því að lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti, sem tekur gildi á morgun, skili sér til neytenda að fullu. Samkeppniseftirlitið mun senda olíufélögum bréf eftir helgi og móta framkvæmd eftirlitsins í framhaldinu.