Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt að opna nýja starfseiningu Klettaskóla í fyrrum Korpuskóla frá og með næsta hausti, 2026, vegna vaxandi nemendafjölda við skólann. Unglingadeild skólans og frístundastarf Öskju verða í Korpuskóla og er unnið að breytingum á húsnæðinu til að mæta þörfum nemenda og starfsfólks.