Samkeppniseftirlitið hefur þegar hafið undirbúning á verðlagseftirliti á eldsneyti til að tryggja að tímabundin skattalækkun sem tekur gildi á morgun skili sér til neytenda, eins og lögin gera ráð fyrir. Virðisaukaskattur á eldsneyti verður lækkaður úr 24% í 11% frá 1. maí til 31. ágúst.Samkeppniseftirlitið hefur heimild til að sekta fyrirtæki sem brjóta gegn lögunum. Auk þess má ráðherra setja reglugerð um tímabundnar aðgerðir, til dæmis að sett verði hámarksverð eða hámarksálagning og fleira til að stýra verðlagningu.Í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins kemur fram að eftirlitsins sé þörf vegna fákeppnisaðstæðna á eldsneytismarkaði og veikrar samkeppni.„Í virku samkeppnisumhverfi ætti ekki að vera þörf á eftirliti með verðlagningu keppinauta.“Vísað er í niðurstöður skýrslna um eldsneytism