Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tveir strandaglópar í Flatey eftir tilfærslu Baldurs

Ekkert samráð var haft við sveitarfélagið Vesturbyggð þegar ákveðið var að ferjan Baldur, sem sinnir áætlunarsiglingum yfir Breiðafjörð, yrði fengin til að leysa af Vestmannaeyjaferjuna Herjólf næstu daga.Þá var enginn fyrirvari á ákvörðuninni, sem hefur meðal annars haft þær afleiðingar að tveir starfsmenn Orkubús Vestfjarða eru nú strandaglópar í Flatey. Ekki liggur fyrir hvernig þeir komast til síns heima.Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, segir óboðlegt að ákvarðanir sem varða samgöngur á svæðinu séu teknar án samráðs og fyrirvara.„Við upplifum þetta sem mikla óvirðingu við okkar hagsmuni hér á þessu svæði, þar sem við stólum á Baldur sem okkar samgöngutæki. Þegar honum er kippt svona úr áætlun bara með engum fyrirvara þá náttúrulega hefur það áhrif á svæðinu,“ segir
Tveir strandaglópar í Flatey eftir tilfærslu Baldurs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta