Mikið er um dýrðir í Svíþjóð í dag þegar Karl Gústaf XVI Svíakonungur fagnar áttræðisafmæli. Halla Tómasdóttir forseti Íslands er í Stokkhólmi ásamt forsetamakanum Birni Skúlasyni en þjóðhöfðingjar allra Norðurlanda eru viðstaddir afmælishátíðina auk fjölda annarra þjóðarleiðtoga og gesta.