Þær segja nýja lagið, Unfolding, fjalla um mikilvægi þess að hlusta á sína innri rödd og að vera trúr sjálfum sér jafnvel þegar utanaðkomandi aðstæður reyna að leiðbeina manni annað. „Við vildum semja valdeflandi lag um sameiginlega reynslu. Maður áttar sig betur á því með tímanum að það er ekki hægt að geðjast öllum en maður getur valið hvað er best fyrir mann sjálfan og sleppt því að hlusta á raddir sem draga mann niður,“ segja Silja Rós og Bergrós.„Við erum helstu klappstýrur hvor annarrar, ef fullkomnunaráráttan bankar upp á er mikilvægt að eiga góða vinkonu sem fær mann til að treysta betur á sjálfan sig,“ bæta þær við. „Það er svo dýrmætt að semja tónlist með bestu vinkonu sinni, stundum endar góður trúnaður á nýju lagi.“Hlustaðu á lagið í spilaranum hér að ofan.