Breiðafjarðarferjunni Baldri verður siglt á milli lands og Eyja næstu daga. Stefnt er að því að mæla dýpt Landeyjahafnar síðdegis.Baldur er lagður af stað suður fyrir land og reiknað með því að hann hefji siglingar í fyrramálið samhliða Herjólfi.G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir siglingaáætlun í höndum Herjólfs ohf. og reiknar með því að hún verði gefin út fljótlega.„Baldur er að koma vegna þess að Vestmannaeyingar og Herjólfur ohf. töldu sig geta nýtt skipið mjög vel og það snýst ekki eingöngu um farþega, það er líka spurning um farmflutninga sem er nokkur biðlisti.“Landeyjahöfn hefur verið lokuð í næstum þrjá mánuði vegna sandburðar. Á meðan hefur verið siglt til Þorlákshafnar sem er mun lengri leið. Herjólfur er 35 mínútur að sigla í Landeyjahöfn en tæpar þ