„Þetta er stærsta ákvörðun sem hefur verið tekin í svona málum á Íslandi. Þetta á sér engin fordæmi, þau uppkaup sem áttu sér stað og það er auðveldara sagt en gert að byrja og hefja það ferli,“ sagði Kristrún Frostadóttir út í gagnrýni á enduruppbyggingu Grindavíkur.Ólafur Adolfsson spurði Kristrúnu út í endurreisn Grindavíkur í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun, einkum út í húsnæðismál. Sagði hann að daglega væru unnin um 1400 störf í bænum en stærstur hluti þyrfti að keyra til Grindavíkur úr öðrum sveitarfélögum vegna þess að ekki væri hægt að fá húsnæði í bænum.Fólk hafi rekið sig á vegg hjá fasteignafélaginu Þórkötlu, sem keypti upp húsnæði í bænum eftir rýmingu, sem hafi gert hlé á veitingu gistilheimilda í bænum. „Sem er mikið bakslag og gríðarleg vonbrigði fyrir þá se