Karl Gústaf Svíakonungur er 80 ára í dag. Hann er sá þjóðhöfðingi í Evrópu sem hefur setið lengst á stóli og sá þaulsetnasti í Svíþjóð. Fyrirmenni frá gervallri Evrópu verða viðstaddir afmælisfögnuðinn, þar á meðal Halla Tómasdóttir forseti Íslands.Karl Gústaf fæddist 30. apríl 1946 og varð konungur 1973 þegar afi hans, Gústaf fimmti, lést. Karl Gústaf var aðeins níu mánaða þegar faðir hans lést í flugslysi.Hann giftist Silvíu Sommerlath í júní 1976 og á því einnig 50 ára brúðkaupsafmæli í ár. Þau eiga þrjú börn, Viktoríu krónprinsessu, Karl Filipp og Magdalenu.Karl Gústaf er sá þjóðhöfðingi sem hefur setið lengst allra á valdastóli í Svíþjóð.Hátíðarhöldin vegna stórafmælisins hófust klukkan tíu í morgun með guðþjónustu í kirkju hallarinnar.Svíar fagna áttræðisafmæli Karls Gústafs Svíakonu