Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, kynnti í morgun nýja landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi sem ber nafnið Réttur til öryggis. Þetta er í fyrsta sinn sem sett verður fram áætlun um hvernig Ísland hyggst koma ákvæðum Istanbúl-samningsins í framkvæmd.„Mér finnst heitið kjarna það sem við erum að tala um. Réttinn til öryggis. Þrátt fyrir að Ísland sé heimsmeistari í jafnrétti, og hefur verið um árabil, þá stendur samt alltaf eftir að það er ofboðslega algeng og útbreidd reynsla kvenna á Íslandi að verða fyrir ofbeldi eingöngu vegna þess að þær eru konur,“ segir Þorbjörg Sigríður.„Það skiptir ekki máli hvort við erum að horfa á tölur um nauðganir eða annað ofbeldi. Þess vegna erum við að fara með markvissum aðgerðum í það núna með fræðslu, forvörnum og lagabreytingum að reyna