Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Meira: Sannfærandi smakkplatti frá manninum á bak við tjöldin

Júlía Aradóttir skrifar:Ég held ég deili því með mörgum að hafa verið aðdáandi Þormóðs Eiríkssonar lengur en ég vissi. Þormóður er pródúsent, takt- og lagasmiður, og á bak við marga af stærstu smellum landsins síðustu tíu ár. Hann skaust fram á sjónarsviðið með trukki með smellinum B.O.B.A. ásamt þeim Jóapé og Króla 2017 og hefur unnið náið með Herra Hnetusmjör, Birni, Úlfi Úlfi, Aroni Can, Emmsjé Gauta og mörgum, mörgum fleirum. Ég fann lagalista á streymisveitunni Spotify með lögum sem Þormóður hefur haft puttana í. Á listanum eru ríflega 250 lög og er listinn þó ekki tæmandi fyrir allt það sem Ísfirðingurinn hefur gert.Fyrsta breiðskífa ofurpródúsentsins Þormóðs Eiríkssonar ber nafnið Meira. Platan fær þrjár og hálfar stjörnur frá Júlíu Aradóttur sem er gagnrýnandi Plötu vikunnar á Rás
Meira: Sannfærandi smakkplatti frá manninum á bak við tjöldin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta