Formaður Landssambands smábátaeigenda segir skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa um banaslys í mynni Patreksfjarðar sláandi. Ljóst sé að margir þættir hafi brugðist.Miklir annmarkar voru á frágangi björgunarbáts í strandveiðibátnum Orminum langa sem sökk í júní í fyrra. Magnús Þór Hafsteinsson, sjómaður og fyrrverandi þingmaður, fórst í slysinu.Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, segir það hafa verið þungt og erfitt að lesa rannsóknarskýrsluna.„Þarna erum við ekki að tala um einhvern veikan hlekk heldur virðist bara öll keðjan vera meira og minna í skralli.“Í skýrslunni kemur fram að umtalsverðar breytingar höfðu verið gerðar á Orminum langa sem ekki voru í samræmi við skráningu. Veður og sjólag var slæmt og hættulegt smábátum. Þá var eftirlit með gúmmíbjörgun