Breytingar sem gerðar voru á þjónustu Sorpu nýverið leggjast misvel í viðskiptavini. Á endurvinnslustöðvum við Dalveg í Kópavogi var frá og með síðustu mánaðamótum fækkað flokkum sem tekið er á móti en þeim sem eru með stærri úrgang bent á að fara á endurvinnslustöðvar á Sævarhöfða og Breiðhellu.