Hæstiréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé heimilt að arfleiða bréferfingja að innistæðu séreignarsparnaðar ef lögerfingjum er til að dreifa. Þannig mátti karlmaður ekki arfleiða sambýliskonu sína að einum þriðja innistæðu heldur rann öll innistæðan til barna hans.