Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Unglingsdrengur kýldur í andlitið í Hamraborg

Drengur á fimmtánda aldursári var kýldur í andlitið í Hamraborg í Kópavogi í gær. Hópur jafnaldra hans er grunaður um árásina. Þetta staðfestir Sigrún Kristín Jónsdóttir lögreglufulltrúi.Hún segir bæði brotaþola og þá sem grunaðir eru um árásina vera af erlendu bergi brotna. Talið sé að þeir séu samlandar og tengsl þeirra á milli en lögregla er enn að afla upplýsinga um hverjir kunni að hafa komið að árásinni. Allavega tvö ungmenni á sama reki urðu vitni að árásinni.Drengurinn var fluttur á slysadeild en Sigrún kveðst ekki vita hvert ástand hans sé. Árásin hafi verið alvarleg en meiðsli drengsins séu ekki þess eðlis að hann sé í lífshættu. Sjónarvottar sem fréttastofa ræddi við í gær sögðu drenginn hafa misst meðvitund en Sigrún segir það ekki koma fram í skráningarkerfum lögreglu.Ekki ste
Unglingsdrengur kýldur í andlitið í Hamraborg

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta