Rússneskir málaliðar, á vegum yfirvalda í Rússlandi, munu ekki yfirgefa Malí. Þar munu þeir áfram aðstoða herforingjastjórn landsins við að berjast gegn uppreisnar- og vígamönnum. Malí og rússneska Afríkudeildin svokallaða hlutu afhroð í skyndisókn vígamanna víða um landið um síðustu helgi.