Meðal þess sem lagt verður upp með í landsáætlun dómsmálaráðuneytisins gegn kyndbundnu ofbeldi er að skoða hvort hægt verði að nafngreina vændiskaupendur þegar mál þeirra fara fyrir dómstóla. Auk þess verður unnið að því að þyngja refsingu þannig að lágmarksrefsing fyrir vændiskaup verði fangelsi en ekki sekt.