Inga Sæland mennta-og barnamálaráðherra segir meiri líkur en minni á að hugmyndir forvera hennar um svæðisskrifstofur framhaldsskóla verði slegnar út af borðinu. Þess í stað eigi að virkja enn frekar tengsl milli menntamálaráðuneytisins og framhaldsskólanna. Hún segist vona að kerfisbreytingar muni liggja fyrir í haust, meðal annars tilhögun á skipunum skólameistara.