Ísland stökk upp um sex sæti á lista samtakanna Reporters Without Borders, Fréttamanna án landamæra, yfir þau ríki heims sem búa við mest fjölmiðlafrelsi. Staðan á heimsvísu hefur þó farið versnandi og hefur meðaleinkunn ríkja aldrei verið lægri síðan samtökin byrjuðu að meta fjölmiðlafrelsi 2021.Skýrsla samtakanna var birt í dag. Í henni er lagt mat á fjölmiðlafrelsi í 180 ríkjum. Í fyrsta skipti frá upphafi er staðan metin erfið eða mjög alvarleg í meira en helmingi ríkja. Meðaleinkunn ríkja hefur aldrei verið lægri en í ár. Staðan er best í Noregi og næst koma Holland, Eistland, Danmörk, Svíþjóð og Finnland. Finnland og Ísrael eru í sjöunda sæti. Þetta eru einu ríkin sem falla í hæsta flokk, þar sem fjölmiðlafrelsi er mest.Það þarf ekki að koma á óvart að Norðmenn séu á toppnum. Þetta e