Andleg líðan ófaglærðra leikskólastarfsmanna er umtalsvert verri en líðan annarra hópa. Ófaglærðir leikskólastarfsmenn eru einnig í verri fjárhagsstöðu en launafólk í öðrum starfsgreinum.Þetta kemur fram í nýrri könnun Vörðu, Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, sem kynnt var í dag. Könnunin, sem var lögð fyrir í júní 2025, lýsir fjárhagsstöðu ófaglærðs starfsfólks í leik- og grunnskólum, stöðu þess á húsnæðismarkaði, sem og andlegri og líkamlegri heilsu þess. TÆPLEGA HELMINGUR MÁ EKKI VIÐ ÓVÆNTUM ÚTGJÖLDUM Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar ná fjórir af hverjum tíu ófaglærðum leikskólastarfsmönnum ekki endum saman. Það sama á við um þriðjung grunnskólastarfsmanna, en hlutfallið er hins vegar 30% hjá öðru launafólki.Þá kveðst tæplega helmingur leikskólastarfsmanna, eða 49%, ekki geta m