Níu af hverjum tíu sem starfa í leikskóla eru með 749 þúsund krónur eða lægri atvinnutekjur á mánuði. Helmingur þeirra sem starfa í leikskólum getur ekki mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum. Einnig mælist andleg heilsa þeirra sem starfa á leikskóla verri en annarra hópa.