Nítján ára taívönsk stúlka var handtekin á alþjóðaflugvellinum í Bangkok í Taílandi fyrir tilraun til að smygla 30 skjaldbökuungum sem hún hafði falið innanklæða. Tollverðir stöðvuðu för hennar eftir að hreyfingar hennar vöktu grunsemdir þegar hún var að gera sig klára til að fara um borð í flug til Taípei á þriðjudag.Skjaldbökurnar eru indverskar stjörnuskjaldbökur og er tegundin vernduð. Söluvirði skjaldbakanna sem stúlkan var tekin með er metið á níu þúsund bandaríkjadali, jafnvirði ríflega einnar milljónar íslenskra króna.Lögreglan í Taílandi rannsakar hvort smygltilraunin tengist glæpasamtökum.Mikið af smygli á villtum dýrum fer um Taíland og dýr í útrýmingarhættu eru eftirsótt á svörtum markaði í Asíu.