Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Mega flagga allan sólarhringinn í sumar

Þingmenn samþykktu einróma á Alþingi í gær að rýmka heimildir til að flagga íslenska þjóðfánanum. Þá samþykktu þeir breytingu á fánalögum sem kveður skýrt á um hvenær megi flagga fána og hvenær ekki.Almenna reglan verður sú að ekki megi draga þjóðfánann á stöng fyrr en klukkan sjö að morgni og að hann verði að jafnaði ekki lengur uppi en til sólarlags, og aldrei lengur en til miðnættis.Fánalögin verða þó rýmri að þessu leyti frá 1. maí til 15. ágúst. Þá má hafa þjóðfánann uppi allan sólarhringinn.Lögin taka strax gildi og má því flagga allan sólarhringinn frá og með morgundeginum.51 þingmaður var viðstaddur atkvæðagreiðslu um lögin og greiddu þeir allir atkvæði með breytingunni. Tólf þingmenn voru fjarstaddir.Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis lagði frumvarpið fram í byrjun síðasta
Mega flagga allan sólarhringinn í sumar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta