Tónlistarmaðurinn David Burke, eða D4vid, stakk hina fjórtán ára gömlu Celeste Rivas Hernandez ítrekað og sagaði lík hennar í sundur með keðjusögum í bílskúr hans. Þetta gerði hann, samkvæmt saksóknurum, svo hún segði ekki frá því hvernig hann hefði brotið á henni kynferðislega.