Þann 24. apríl 1986 kom saman hópur fólks í Súlnasal Hótel Sögu með þá hugsjón að grípa til aðgerða til að hjálpa fólki í fíknivanda. Þar voru Krýsuvíkursamtökin stofnuð og í fjóra áratugi hefur starfið byggst á óbilandi trú á málstaðnum, fagmennsku og þeirri sannfæringu að allir eigi rétt á tækifæri til nýs upphafs.