„Veikindi starfsmanna Reykjavíkurborgar hafa kostað borgarsjóð á bilinu sex til sjö milljarða króna árlega undanfarin ár. Auðvitað er bagalegt þegar fólk lendir í langtímaveikindum. Í einhverjum tilvikum getur það snúið að óheilnæmu skólahúsnæði, en það eru líka sterkar vísbendingar um að fólk sé að misnota veikindaréttinn og það er nokkuð sem þarf að koma í veg fyrir að gert sé.“