Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Öryggisgæsla fyrir ósakhæfa rís á Hólmsheiði

Ríkið hefur samið við Reykjavíkurborg um að fá lóð á Hólmsheiði. Þar á að reisa öryggisgæslustað fyrir ósakhæfa einstaklinga sem framið hafa alvarleg afbrot. Þar verður einnig hægt að vista brotamenn sem hafa verið sakfelldir en ekki þykir líklegt að fangelsisrefsing beri árangur. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, undirrituðu samkomulag um lóðina í fyrradag. Þar rís gæsla fyrir allt að sautján einstaklinga. Að auki verða þar skrifstofur Miðstöðvar um öryggisráðstafanir.Fangelsi er á Hólmsheiði. Öryggisgæsla verður reist í nágrenninu.RÚV / Ragnar Visage
Öryggisgæsla fyrir ósakhæfa rís á Hólmsheiði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta