Heimsmynd okkar er breytt og á meðan við ræðum hlutina heldur heimurinn áfram að snúast. Á síðustu misserum höfum við séð hvernig grundvallargildi alþjóðasamfélagsins – lýðræði, frelsi og mannréttindi – hafa átt undir högg að sækja. Friðhelgi landamæra er brotin, borgir eru sprengdar og börn grafin undan rústum.