Veðrið í dag verður saga tveggja landshluta. Bjartviðri og allt að tólf stiga hiti fagnar fólki austan til á landinu en á vestanverðu landinu er útlit fyrir skúri eða slydduél. Þessu veldur smálægð á Grænlandssundi sem þokar sér austur.Veðurspáin er svohljóðandi:Suðvestan fimm til þrettán metrar á sekúndu og skúrir eða slydduél á vestanverðu landinu, en lengst af bjartviðri eystra. Dregur úr vindi og úrkomu í kvöld. Hiti þrjú til tólf stig, mildast austantil.Norðan og norðvestan fimm til tíu stig á morgun, en tíu til fimmtán austantil. Dálítil él á norðanverðu landinu en að mestu léttskýjað sunnan heiða. Hiti eitt til níu stig, svalast norðanlands.