Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Konur sungu einnig gregorssöngva

Á vortónleikum Cantores Islandiae ómaði gregorssöngur í Laugarneskirju við undirleik sjaldséðra miðaldahljóðfæra. Söngvarnir fjölluðu á öldum áður um öll svið trúarlífs og helgihalds.Ágúst Ingi Ágústsson er forsöngvari og stjórnandi Cantores Islandiae og segir söngvana hafa heyrst bæði í munka- og nunnuklaustrum. „Konurnar gáfu körlum ekkert eftir þótt þeir hafi aðallega sungið í kirkjunum.“Söngurinn er flæðandi og andaktugur enda ekki taktbundinn. „Hann reynir ekki mikið á þolmörk raddsviðsins. Gætt var að því að sem flestir gætu sungið“.Siðbótarmenn vildu hafna tignun dýrðlinga og því var fjöldi gamalla tónlistarhandrita endurnýttur. Þannig glataðist nokkuð af eldri tónlistararfi okkar en eitthvað er þó til af íslensku efni.„Það er nánast kraftaverk að sumt hafi varðveist.“
Konur sungu einnig gregorssöngva

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta