Samfélagshópur gyðinga varaði lögregluyfirvöld í Ástralíu við því að hryðjuverkaárás kynni að vera yfirvofandi nokkrum dögum áður en feðgarnir Sajid og Naveed Akram myrtu fimmtán manns og særðu á fjórða tug á Bondi-ströndinni á ljósahátíð í desember.Bráðabirgðaniðurstöður konunglegrar rannsóknarnefndar sýna að þeir lögðu vísvitandi til atlögu að samfélagi gyðinga. Chris Minns, fylkisstjóri Nýja Suður-Wales, segir ábyrgð liggja hjá honum. „Við hefðum sent her þangað hefðum við vitað hvað gæti gerst,“ sagði hann.Í skýrslu nefndarinnar er vitnað til viðvarana samfélagshópsins um að viðlíka árás vofði yfir í ljósi þess hversu áróður gegn gyðingum hafði aukist í Ástralíu. Lögregla hafði þá sagt að fylgst yrði með ljósahátíðinni en að ekki væri unnt að hafa lögreglulið á staðnum.Mal Lanyon, lögr