Einn var handtekinn vegna þjófnaðar í vesturhluta Reykjavíkur og tilkynning barst um að betlari væri að angra viðskiptavini fyrirtækis í Laugaráshverfi.Einn var handtekin fyrir þjófnað og annar fyrir ólöglega dvöl í landinu.RÚV / Sölvi AndrasonÞetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem handtók mann grunaðan um ólöglega dvöl í landinu og ólögmæta atvinnustarfsemi og annan fyrir skjalafals og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.Ökumaður var kærður fyrir akstur án réttinda. Húsráðandi í Árbæ lofaði að lækka eftir að nágrannar kvörtuðu undan tónlistarhávaða sem barst frá híbýlum hans. Þrír gistu fangageymslur lögreglunnar í morgun.